Student Instructions
Summa Finndu summu talnanna 10 og 10 Finndu summu talnanna 8 og 8 Finndu summu talnanna 6 og 4 Lestu og reiknaðu Í safni Ara eru 12 rauðir boltar og 6 gulir boltar. Hvað á Ari marga bolta? Ari átti afmæli og fékk 3 bolta í viðbót. Hvað á hann núna marga bolta samtals? Á Ari meira en 20 bolta?
Teacher Notes (not visible to students)
Verkefnahefti um samlagningu, orðaforða samlagningar og lesskilning. Verkefnin eru byggð á bókinni Safnið mitt en geta þó staðið ein og sér. Þetta er verkefnahefti eitt af tveimur heftum. Heftin eru mjög áþekk en þyngdarstigsmunur er á þeim. Verkefnin eru fjölbreytt og tengjast öll samlagningu á einhvern hátt. Þau eru sett fram sem bein dæmi, orðadæmi, reiknivélaverkefni, merkja við rétt eða rangt og vinnu með fjölbreyttan orðaforða samlagningar. Inn í heftið er fléttað inn verkefnum er tengjast íslensku og orðaforða sögunnar Safnið mitt eins og t.d. að raða í stafrófsröð, rím, orðasúpa, ritun, orðskýringum, verkefni um dagatalið og tengja saman orð og tákn.